Guðbjörg Arnardóttir

Monday, March 06, 2006

Hóst, slef og hor

Skemmtileg fyrirsögn. Nú naga ég mig í handabökin fyrir að hafa verið að hrósa heimilismeðlinum fyrir heilsuhreysti og varla leið sólarhringur þar til börnin gripu pestir. Ásrún með hið dæmigerða kvef með miklum hita og hósta sem er þannig að öll líffærin virðast vera á leiðinni upp líka. Freyr náði sér í sýkingu í augun, hann leit í spegil og sagðist líta út eins Kínverji, nokkuð nærri lagi hjá honum. Til að vinna á sýkingunni þurfti krem í augun og ofurhetjan ógurlega sem þykist geta sigrað heiminn með einni sveiflu á sverðinu missir allan kjark og gott betur þegar kemur að blóði eða eigin veikindum. Nú reyndi mikið, mikið á þolinmæði foreldranna og hæfileika þeirra til sannfæringar um ágæti kremsins. Það gekk því á ýmsu um helgina en þetta lítur allt betur út í dag og vonandi bara betra næstu daga. Sendi ykkur kvefaðar kveðjur í upphafi vikunnar.

1 Comments:

  • At 2:06 PM, Anonymous Anonymous said…

    Leiðinlegt að heyra Gugga mín með lassarusana þína en þannig er þetta bara það virðist engin sleppa við þessa flensu...jafnvel ekki Batman... var farin að hlakka svo til að fá ykkur í sveitina á morgun......batakveðjur Rollan

     

Post a Comment

<< Home