Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, March 26, 2006

Helgin

Timinn flýgur hratt það er víst ekki hægt að segja annað. Vikan hefur farið í hitt og þetta. Það var vorferð Æskulýðsfélags Selfosskirkju í Haukadal, nokkuð vel heppnuð held ég þrátt fyrir mikinn kulda og rok. Feðgranir fengu að fara með. Freyr sá um brandara í rútunni og söng Sylvíu nótt af innlifun. Hreinn stendur sig vel í kirkjustarfinu, keyrði rútuna og spilaði á gítar í kirkjunni. Hann yrði flottur prestmaddammur einn daginn, hehhe. Enda var hann fengin í smá stólaburð í kirkjunni í dag og fór fólk fljótt að tala um að eðlilega væri hann orðinn meðhjálpari, einmitt ;-) Já helgin fór mikið í kirkjusókn, Selfosskirkja 50 ára og mikið um að vera. Allt mjög vel heppnað og gaman. Seinni partinn í dag var það annað afmæli í Fljótshlíðinni hjá bróðurdóttir Hreins. Nú er það bara náttföt á sunnudagskvöldi, Kronikan búin, Ásrún sofnuð, Hreinn á æfingu og ég ætla að vinda mér í lestur fyrir Frey og svo sjálf í ból enda háld lúin, eins og flest önnur kvöld. Góða nótt og Guð og englarnir geymi ykkur.

1 Comments:

  • At 1:25 AM, Anonymous Anonymous said…

    Hæ hæ :) Mig langaði einmitt svo mikið í afmælismessuna en ég fór í barnamessu uppí hrepp kl 11 og var svo boðin í mat eftir það þannig að Selfosskirkja varð fimmtug án mín :/ Sá bæklinginn hjá ömmu og afa í gær, vissi ekki hvaða brúðhjón voru á myndinni fyrr en ég fór að skoða svaramennina :) Hejsann i byen!

    Kv, ÁR

     

Post a Comment

<< Home