Guðbjörg Arnardóttir

Friday, March 31, 2006

Á grasinu

Þá er húsmóðirin grasekkja þessa dagana. Húsbóndinn á Mývatni að segja eitthvað gáfulegt um grisun og lyfta glösum þess á milli. Á meðan streða ég einsömul í uppeldinu ;-) Freyr tekur fjarveru föður síns mjög alvarlega og er harður á því að hann þurfi að verma plássið hans í hjónarúminu og passa mig. Ég nenni ekki að mótmæla því og leyfi honum halda það að hann eins og aðrir karlmenn þurfi að standa vörð um konurnar í kringum þá. Ásrún er bara hress en gengur reglulega um húsið og kallar á pabba sinn. Hið sama gerði hún heima hjá ömmu sinni og afa í gær þegar við skutumst þangað. Hún gekk um allt og hrópaði á afa sinn en hann lét ekki sjá sig enda eru hann og amman vant við látin á Kúbu og lái ég þeim það ekki þó þau svari ekki kalli. Mér skilst að hjá þeim sé lífið ljúft. Sólin skín og bara gaman, það er ekki sama hel... rokrassgatið og hér um slóðir með tilheyrandi kulda og enn meira tilheyrandi geðlægðarsveiflu. En sólin stígur á hverjum degi hærra og lætur sjá sig lengur sem er ægilega notalegt. Hlakka til þegar hinir notalega svölu vordagar láta sjá sig og trén hreyfa sig minna. En megið þið eiga góða helgi hvar sem þið eruð, adios amigos.

Monday, March 27, 2006

Útskeif brúður




Það hefur hér á síðunni verið minnst á hin glæsilegu brúðhjón í afmælispésa Selfosskirkju. Systir mín hafi á orði að brúðurin væri heldur útskeif. Var ég sjálf búin að taka eftir þessu og hafa orð á því við brúðgumann. En eins og myndin hér að ofan sýnir er ég nánast innskeif í brúðkaupinu miðað við þessa. Þessi mynd er ekki uppstilling, Hreinn tók hana sérstaklega af því fyrir mér var þetta eðlileg hvíldarstelling á löppunun ;-) Til viðmiðunar eru lappirnar á tengdapabba, mjög eðlilegar. Á reyndar líka eins og margar kannast við uppstilltar útskeifar myndir en þær komast ekki á netið hehehehe !

Sunday, March 26, 2006

Helgin

Timinn flýgur hratt það er víst ekki hægt að segja annað. Vikan hefur farið í hitt og þetta. Það var vorferð Æskulýðsfélags Selfosskirkju í Haukadal, nokkuð vel heppnuð held ég þrátt fyrir mikinn kulda og rok. Feðgranir fengu að fara með. Freyr sá um brandara í rútunni og söng Sylvíu nótt af innlifun. Hreinn stendur sig vel í kirkjustarfinu, keyrði rútuna og spilaði á gítar í kirkjunni. Hann yrði flottur prestmaddammur einn daginn, hehhe. Enda var hann fengin í smá stólaburð í kirkjunni í dag og fór fólk fljótt að tala um að eðlilega væri hann orðinn meðhjálpari, einmitt ;-) Já helgin fór mikið í kirkjusókn, Selfosskirkja 50 ára og mikið um að vera. Allt mjög vel heppnað og gaman. Seinni partinn í dag var það annað afmæli í Fljótshlíðinni hjá bróðurdóttir Hreins. Nú er það bara náttföt á sunnudagskvöldi, Kronikan búin, Ásrún sofnuð, Hreinn á æfingu og ég ætla að vinda mér í lestur fyrir Frey og svo sjálf í ból enda háld lúin, eins og flest önnur kvöld. Góða nótt og Guð og englarnir geymi ykkur.

Monday, March 20, 2006

Mont mont



Verð bara að skella inn þessari mynd af snúllunum mínum. Þó Ásrún sé með tómatsósuna um allt andlit og myndin örlitið hreyfð þá finnst mér þau ógurlega krúttleg, eins og foreldrarnir, heheheheh!
Annars allt gott að frétta, við öll orðin hraust og komum hressileg undan helginni, hjá okkur var líf og fjör. Palli og Edda gistu og það var voða gaman. Nú sefur Freyr á dýnunni sem Palli svaf á, búin að bíða eftir því og ef allt stenst þá segist hann ekki koma upp fyrst hann sofi á dýnunni, sjáum hvað setur.

Thursday, March 16, 2006

Góður pistill

Ég sitt enn sveitt við tölvuna og nýti tímann mikið í vinnu, sinna minna heimilinu en sem betur fer kemst ég ekki hjá því að sinna börnunum ;-). Þau hanga iðulega fyrir utan hurðina hjá mér, Freyr hleypir sér sjálfur inn og lætur allt flakka. Ásrún kann ekki trikkið ennþá og bankar bara og kallar á mömmu sína. Þá er erfitt að halda sig við skjáinn. Langði bara rétt að heilsa og benda á nokkkuð góðan pistil Jóns Gnarr í Fréttablaðinu. Bestu kveðjur til ykkar í bili!

Friday, March 10, 2006

Sveitt við tölvuna

Heilsufarið á heimilinu er allt að lagast og koma, Ásrún reyndar komin með í eyrun, á sýklalyf og svo ofan á það sveppasýkingu. Aldrei, aldrei skal ég aftur tala um hvað við höfum hingað til verið heppin að sleppa við svona vesen, nú erum við fastagestir á læknavaktinni.
Að öðru leyti reyni ég að sitja sem oftast sveitt við tölvuna, er aftur komin í törn hjá Biblífélaginu og reyni að ljúka því af. Við hjónin komum til með að reyna að skipta með okkur vöktum og svo verður mamma við hendina til að sinna börnunum sem minna fá af athygli móðurinnar. Ég harma þetta svo sem ekkert að geta lokað mig af inni í herbergi, verið við tölvuna og ekki með samviskubit fyrir fimm aura. Nema núna svo ég ætla að koma mér að verki.
Hlakka til orlofsins í kvöld, hittingurinn á Krúsinni, nammi nammi og gaman, gaman.
Góða helgi ljúfust !

Monday, March 06, 2006

Hóst, slef og hor

Skemmtileg fyrirsögn. Nú naga ég mig í handabökin fyrir að hafa verið að hrósa heimilismeðlinum fyrir heilsuhreysti og varla leið sólarhringur þar til börnin gripu pestir. Ásrún með hið dæmigerða kvef með miklum hita og hósta sem er þannig að öll líffærin virðast vera á leiðinni upp líka. Freyr náði sér í sýkingu í augun, hann leit í spegil og sagðist líta út eins Kínverji, nokkuð nærri lagi hjá honum. Til að vinna á sýkingunni þurfti krem í augun og ofurhetjan ógurlega sem þykist geta sigrað heiminn með einni sveiflu á sverðinu missir allan kjark og gott betur þegar kemur að blóði eða eigin veikindum. Nú reyndi mikið, mikið á þolinmæði foreldranna og hæfileika þeirra til sannfæringar um ágæti kremsins. Það gekk því á ýmsu um helgina en þetta lítur allt betur út í dag og vonandi bara betra næstu daga. Sendi ykkur kvefaðar kveðjur í upphafi vikunnar.

Friday, March 03, 2006

Alþjóðlegur bænadagur kvenna

Í dag er alþjóðlegur bænadagur kvenna. Ég fór í fallega bænastund í Selfosskirkju í morgun, voða notalegt að byrja daginn á því. Hvet ykkur konur til að biðja í dag, sem og aðra daga.
Helgin er merkilegt nokk ekki plönuð nema að eiga rólega daga heima fyrir.
Á sunnudag er fjölskylduguðsþjónusta í kirkjunni og sjáum við Eygló um hana og barnakirkjukórinn syngur. Það verður vonandi líf og fjör í kirkjunni.
Megið þið eiga góðan dag og góða helgi.

Wednesday, March 01, 2006

Öskudagsheimspeki

Öskudagurinn er floginn á brott. Batman "Bekkins" átti góðan dag. Hann fór með vini sínum, Kobba kló og mömmu hans að rölta í nokkrar búðir og syngja, svona rétt að kíkja á stemningu og þótti mjög merkilegt og gaman. Ég var ánægðust með að greinilega er vakning í þjóðfélaginu því Íslandsbanki gaf banana og einhverjir aðrir bankar harðfisk, frábært ;-) Það er síðan strax farið að plana næsta öskudag og ætlar minn maður þá að vera Silvía Nótt, sjáum hvað það endist lengi.
Nú fer fastan við og ekkert múður, eða hvað. Ég ætlaði að setja mér það markmið að minnka sykurneyslu mjög mikið en það tókst þó ekki fullkomlega í dag en kannski seinna. Svo ætla ég að vera dugleg að íhúga lífið og tilveruna og iðka mína trú enn harðar þó ekki á þann hátt að ég berji mig á bakið til blóðs með ísóp. En alltaf má setja sér markmið og ef þau takast ekki þá er að setja sér það markmið að láta það ekki slá sig út af laginu og halda áfram með lífið. Ég ætla að setja hér í tilefni íhugunar tilvitnun í bók sem við erum að lesa fyrir Frey. Þetta er snilldarbók og heitir: "Halló! Er nokkur þarna?" eftir líklega norskan höfund að nafni Jostein Gaarder. Þetta er barnaheimspeki og fjallar um strák sem kynnist strák eða veru af öðru hnetti og saman spjalla þeir um lífið og tilveruna, bera saman hnettina sína og velta fyrir sér þróunarsögu mannskynsins. Já, ég tel vísindi og trú alveg fara saman og hér er þróunarkenningunni ekki hrint undir borð enda myndi það enda með upplausn fjölskyldunnar; líffræðin vs guðfræði en það er aftur annað mál. Þessi tilvitnum úr bókinni hrópaði á mig sem speki um hvernig beri að haga lífinu eins og segli eftir vindum. Finna sinn styrkleika, gefast ekki upp og leita réttra leiða til úrlausnar þeirra verkefni sem lífið krefst af okkur.
" - Þar sem eru brött fjöll er nauðsynlegt að vera duglegur að klifra, hélt Mika áfram. - Á sléttlendi skiptir máli að geta hlaupið. Og þar sem er mikið um rándýr getur verið kostur að vera vondur á bragðið. Enn betra er sjálfsagt að vera eitraður. En allra best er líklega að vera klár í höfðinu." Þar hafiði það, kannski er þetta bara bull í mér en það er eitthvað í þessu sem heillar mig. Finnið ykkar leið í lífinu og njótið þess, fastið, freistist en frelsist !