N fyrir að Njóta
Ég á oft við þann vanda að stríða að hafa móral yfir hlutunum, sérstaklega þegar prinsippin mín hverfa fyrir lítið. Ég er enn með móral yfir skamminu við bankakonuna og svo leiðist mér að hafa nöldrað yfir því við ykkur krúttin mín. Til að kóróna allt kom í gær fréttabréf frá Kvennkirkjunni og í pistlinum hennar Auðar, sem mér finnst svo gaman að lesa og tek tillit til biður Auður okkur vinsamlegast um að hætta að nöldra, það geri engum gott og ef við endilega þurfum að segja einhverjum eitthvað sem við erum ekki ánægð með þá gerum við það fallega. Til að bæta fyrir nöldrið mitt. Ætla ég næstu daga að gera NÖLDUR að einhverju jákvæði. Hér er fyrsti pistillinn:
N fyrir að NJóTA!
Njótum alls sem lífið býður okkur upp á. Njótum sérstaklega litlu hlutanna. Njótum þess að vakna á morgnana, njótum þess að drekka morgunkaffið eða teið og ákveðum um leið að njóta dagsins fram í fingurgóma. Njótum okkar, við erum æði! Njótum ásta ;-) Njótum lífsins og þá verður svo skemmtilegt að brosa. Njótið dagsins mín kæru!

1 Comments:
At 1:07 PM,
Anonymous said…
Halllelújaaa fyrir því....
Maður mætti nú minna sig oftar á það... Eða eins og ég heyrði einhversstaðar... " stundum er betra að kveikja á kerti.. í stað þess að kvarta yfir myrkrinu..."...
kv. Ása Frænka...
ps. KLUKK!!!!!
Post a Comment
<< Home