Guðbjörg Arnardóttir

Tuesday, February 07, 2006

Fór í banka, ekki banka!

Mín bankaviðskipti minna mig orðið á grínþátt úr Gervabælinu. Einhvern tíma á síðasta ári fengum við hjónin hingað ráðgjafa frá KB-banka sem fór yfir öll okkar banka- og tryggingamál og það varð úr að ég gekk til liðs við KB svo við værum í sama liði og fengum kannski einhver góð kjör út á það. Ballið byrjaði í raun strax í viðtalinu því á meðan konan var hjá okkur hringdi einhver frá KB banka og ætlaði að lokka mig í viðskipti, Hreinn með sinn húmor sem í þessu tilviki kom að góðum notum, lét konuna fá símann og hún talaði við manninn, gekk þeirra símtal út á að spyrja hvar í fyrirtækinu þau störfuðu. Stuttu seinna er hringt í mig og ég beðin um staðfestinu á umsókninnni í bankann og þar stuttu síðar átti ég að mæta í útibúið og fá nýtt kort og allt það, fékk meira að segja þetta forláta skóburstasett með, VÁ VÁ! Hélt ég að ég þyrfti því ekki að hafa meiri áhyggjur af bankastússi í bili, því að er ekki mín sterka hlið og reyndar er ég bara afar slök í að fylgjast með svona hlutum og vera inn í því hvað kemur sér best fyrir mig og mína en hvað um það ég hélt að nú væri þetta í nokkuð góðum gír. Jæja, einhvern tíma í nóvemeber fæ ég bréf frá viðbótalífeyrissparnaði KB hvort ég vinni ekki enn hjá sama fyrirtækinu, jú ég vissi sjálf að ég væri enn á launaskrá en fengi engin laun því verkefnið væri ekki í gangi í bili. Ég nennti ekkert að tilkynna þeim það, nei síðan þá hafa þrír mismunandi aðilar frá þessum blessaða banka hringt seint að kvöldi til að spyrja að þessu, hvar ég vinni og hvaðan ég fái tekjur. Ég hef reynt að vera nett kurteis yfir þessu enda reyni ég að æsa mig ekki við fólk sem reynir að vinna sína vinnu. Svo sprakk ég í kvöld, er reyndar enn með móral yfir því. Þá hringir enn ein persónan og hún segist vera með umsókn frá mér fyrir framan sig um að ég vilji komast í Vöxt en þar sem ég uppfylli ekki öll skilyðri spyr hún hvort hún megi bóka símtal til mín frá ráðgjafa. Ég segist þá bara ekkert skilja í þessu lengur, ég vilji bara vera hversdagslegur viðskiptavinu KB banka, já þá uppfylli ég öll þau skiliyrði en ekki hjá VíS, halló, við ætluðum ekkert að skipta um tryggingar var skýrt tekið fram við einhvern af litlu grænum ráðgjöfunum. Aumingja konan baðst afsökunar og ætlaði að afskrá þessa umsókn um Vöxt. Er ekki allt í lagi með þetta lið, jæja, þetta heldur þó niðri tölum um atvinnuleysi. Það er greinilega nóg að gera og miðað við þetta greinilega allar línur glóandi hjá KB út af hinu og þessu. Fyrr má nú vera. kannski væri bara best að fá útborgað í seðlum og eiga innlegg í búðunum, fá smjör í skiptum fyrir lopavettlinga og leyfa ráðgjöfunum hringja frekar á Rás 2 og fá óskalag.
Jæja, ég varð bara að fá að röfla. Ég er samt með sjúklegan móral að hafa misst mig við aumingja stúlkuna sem ætlaði að vera ógurlega kurteis við mig, ég hefði átt að telja upp á 10 og segjast svo ekki hafa tíma fyrr með vorinu og þá væri ég kannski komin í gott skap.
Heheheheheeh! En svo ég hætti þessu röfli og segi einn aulabrandara í lokin svo allir komist í gott skap.
Tvær appelsínur voru á gangi úti við sjóinn þegar önnur datt út í, þá sagði hin: ,,Fljót! Skerðu þig í báta''!
Upp með góða skapið ;-)

1 Comments:

  • At 12:57 PM, Anonymous Anonymous said…

    bara að prófa commentsystemið....;0) Já ég skil þig vel stundum þarf maður bara að pústa... ÉG er til dæmis búin að fá vottafí.... heim til mín svona 5 sinnum á ári.. því að ég leyfði þeim einu sinni að koma inn til mín og kynna fyrir mér hina "sönnu kristnu trú";0)
    og halleluja...
    kv. ninnus frænka...

     

Post a Comment

<< Home