Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, February 05, 2006

Dagskrá síðustu daga

Það hefur verið nóg að gera í vikunni. Ekkert nema gott um það að segja.
Eftir æskulýðsfund á fimmtudagskvöld brunaði mín í höfuðborgina á ekki ómerkari stað en Gauk á Stöng. Þar var hin merka hljómsveit Slow Train, Bob Dylan Tirbute Band að spila og spilar eiginmaðurinn á gítar í hljómsveitinni. Mín var því "grúppí". Þeir voru bara nokkuð góðir og var gaman að kíkja á þá, dró einmitt Elfu syss með og var hún bara líka sátt, sagði það alla vega við mig heheheh ;-)
Á föstudeginum stimplaði ég mig út af heimilinu um hádegi og fór með eitt rútu til Reykjavíkur, alltaf notalegt að taka rútuna. Á leiðinni las ég bók sem ég fékk í jólagjöf en það er bókin: "Draumaveröld kaupalkans", það er svolítið kaldhæðnislegt að bókin hafði þau áhrif á mig að það var eiginlega brunalykt af mér þegar ég fór út úr Kringlunni svo mikið var straujað. Ég ætla bara ekki að lesa meira í bókinni fyrr en töluvert síðar. En allt voru þetta bráðnauðsynlegir hlutir eða réttara sagt flíkur og fylgihlutir, híhíhí. Ég fór líka í Kirkjuhúsið og keypti mér smá guðfærði til að vega upp á móti hinum veraldlegu eyðslu. Loks arkaði ég í Neskirkju og kíkti á stofnfund æskulýðsfélags Þjóðkirkjunnar, þar hitti ég óvænt Sollu vinkonu mína að norðan, það var hápunktur fundarins. Þetta var svo það eina kristilega sem fram fór þetta kvöld restin var bara niður á við eða kannski bara upp. Ég þakka Sif og Karenu hrikalega vel fyrir síðast, þetta var æði, allt kvöldið ;-) Lifi á þessu lengi. Laugardagurinn var í leti og var það vel. Freyr varð eftir í Reykjavík hjá frænku sinni og átti með henni mikið skemmtilega menningardaga í höfuðborginni. Á sunnudag lá leiðin enn og aftur til höfuðborgarinnar og nú í 3 ára afmæli til Patreks Thors, voða stuð og var erfitt að ná Frey heim, sem virtist ekki vitund sakna þess að vera ekki búin að vera heima hjá sér síðan á laugardagsmorgun. Á sunnudagskvöld var óvænt matarboð hjá Gauja og Birnu, ekta gamaldags kótilettur og ís og ávextir í eftirmat, við slefuðum öll yfir kræsingunum og hrópuðum húrra fyrir því gamla góða sem stundum gleymist fyrir glamúr uppskriftum í glanstímaritum.
Þannig leið helgin og þannig var það, nú er að enn á ný mánudagur og ekki laust við smá bömmer eftir þessa þéttu dagskrá en hið bjarta ljós mánudagsins rennur upp með hverri klukkustund sem líður af deginum og fyrr en varir verð ég komin í joggingin og LOST byrjað ;-)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home