Brunað eftir Batman
Við vorum að koma úr örstuttri ferð í höfuðborgina. Nú var að standa við stóru orðin. Freyr hefur staðið sig eins og hetja í orkuátaki, mér fannst þetta hins vegar orðið gott enda komið í ljós að mataræðið á heimilinu er ekki svo galið. Þetta er líka orðið paslegt af áhyggjunum yfir mataræði hjá ekki eldri manni en þetta, hann var farin að halda því að hitt og þetta væri óhollt sem átti ekki við rök að syðjast. Verðlaunin voru harður ,,Batman bekkins'' þ.e. Batman búningur með hörðu brjósti og vöðvum eins og í myndinni Batman Begins! Við fundum gripinn í Smáralindinni og var Freyr ekki lítið glaður yfir herlegheitunum. Hann fékk að fara í búninginn á kaffihúsinu hjans Jóa Fel, síðan skoðaði hann sig í spegli á salerninu. Vá, hvað honum þótti hann flottur, bara að horfa á hann fá andköf yfir sjálfum var mjög fyndið. Svo setti hann sig í alls kyns stellingar og sveiflaði skikkjunni, ég ætlaði aldrei að ná honum frá speglinum. Þetta á sko við Frey sem er sjúkur í búninga og ímyndunarleiki, svo hann labbaði mjög ánægður með sig út í bíl og þótti ekki leiðinlegt að honum væri veitt athygli, enda ekki á hverjum degi sem maður mætir ,,Batman bekkins''. Í gær horfðum við á Freyr í leikriti, hann var tröllið undir brúnni í Geitunum þremur, hann stóð sig bara nokkuð vel og var sannfærandi í hlutverkinu, svo það er greinilegt að búningarnir og ímyndunarleikirnir heima hafa sitt að segja ;-) Ásrún virðist hafa sömu gen því í staðinn fyrir að leita að dúkkunni sinni fer hún í búningaskúffuna hans Freys, skellir Spiderman búningnum um hálsinn, grípur stórt vopn og kemur öskrandi fram. Það læra blessuð börnin sem fyrir þeim er haft.
Jæja, nóg um börnin í bili.
Jæja, nóg um börnin í bili.


4 Comments:
At 4:39 AM,
Gunnur said…
Freyr þyrfti að komast í öskudagsbúningana hérna! Fullar dótabúðir af spiderman, turtles, batman og hvað þetta nú allt heitir :-) Gott að börnin hafa ímyndunaraflið í lagi, þau eiga nú ekki langt að sækja leikhæfileikana!!
At 10:12 AM,
Anonymous said…
Hæ hæ lambið mitt,hvaðan ætli börnin þín hafi þessa búningasíki ,það er eins og mér detti hún amma Sessa í hug allavegna með grímurnar sínar,ég á frábæra mynd af Frey sem ég tók í afmælinu hans Patreks Thors þarf endilega að senda þér hana.. annars er allt gottúr sveitinni 6 litlir kálfar sem bíða eftir að Freyr skoði þá ......núna er ég komin með bloggsíðu já hún getur margt sú gamla..haha bloggið er
blogg.central.is/sibbs kíktu á sögur úr sveitinni....love Rollan
svo erum við komin með nýtt email.
mumu@simnet.is
At 10:17 AM,
Anonymous said…
Ég aftur hvað er aftur emalið þitt.
Rollan
At 1:58 PM,
Anonymous said…
Hvað með legurnar á prestajeppanum?
Post a Comment
<< Home