Guðbjörg Arnardóttir

Monday, February 27, 2006

Helgin og klukk

Bolla, bolla, bolla! Vikan hefst á bolludegi, mín er með bollur í ofninum og svo eru fiskibollur í kvöldmat með tilheyrandi matargestum, mikið að gera hjá dugmikilli húsmóður, heheheh! Helgin var æði, vorum í Álfheimum umkringd mikið góðu fólki, þetta var rosalega gaman og gott að hitta skemmtilegt fólk ;-) Ég get því ekki annað en komið fersk inn í vikuna. Við hjónin skelltum okkur í Selfossbíó í gær, frábært að fara í bíó. Ekki spillti að myndin var eðal, eðal. Brokeback Mountain, mæli með henni 200 %, segi ekki meira!
Ég er hins vegar núna að svara klukki, ég hef eiginlega tvívegis verið klukkuð af Ásu Ninnu frænku og nú síðast Gunni, ég er ekkert að bíða eftir þriðja klukkinu og lýk þessu bara af.
4 störf sem ég hef unnið: Skúringar í P.S. - Deild 14, Kleppi - Ásheimar - Glaðheimar
4 (uppáhalds)staðir sem ég hef búið á: Miðengi - Am Nottenbach 2 - Þverholt - Stekkholt
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum: Mallorka - Luxembourg - Tampere - Suðursveit
4 matur er manns megin: Lambið úr gæsun Sifjar ;-) - Grænmetisbuff og klettasalat - Seiktur þorskur - Eftirréttir, algjör naðsyn eða bara súkkulaðimoli /ar
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur: Lömbin þagna, undir ákveðnum kringumstæðum ;-) - Gestaboð Babette - Hringadrottinssaga - Sound of Music
4 uppáhaldssjónvarpsþættir: Desperate Housewifes - LOST - hef ekki tíma í að festast yfir fleiri þáttum svo ég nefni 2 nostalgíuþætti þ.e. Tvídrangar og X-Files
4 staðir sem ég vildi vera núna: Lux í heimsókn hjá Kollu minni - einhverri strönd - Þórsmörk - sofandi inni í rúmi og allt hreint frammi.
4 Bloggarar sem ég ætla að klukka: Sigga Gunn og Sibba Grét frænka sem er nýkomin í bloggheiminn! Man annars ekki eftir fleirum óklukkuðum.

Wednesday, February 22, 2006

Brunað eftir Batman

Við vorum að koma úr örstuttri ferð í höfuðborgina. Nú var að standa við stóru orðin. Freyr hefur staðið sig eins og hetja í orkuátaki, mér fannst þetta hins vegar orðið gott enda komið í ljós að mataræðið á heimilinu er ekki svo galið. Þetta er líka orðið paslegt af áhyggjunum yfir mataræði hjá ekki eldri manni en þetta, hann var farin að halda því að hitt og þetta væri óhollt sem átti ekki við rök að syðjast. Verðlaunin voru harður ,,Batman bekkins'' þ.e. Batman búningur með hörðu brjósti og vöðvum eins og í myndinni Batman Begins! Við fundum gripinn í Smáralindinni og var Freyr ekki lítið glaður yfir herlegheitunum. Hann fékk að fara í búninginn á kaffihúsinu hjans Jóa Fel, síðan skoðaði hann sig í spegli á salerninu. Vá, hvað honum þótti hann flottur, bara að horfa á hann fá andköf yfir sjálfum var mjög fyndið. Svo setti hann sig í alls kyns stellingar og sveiflaði skikkjunni, ég ætlaði aldrei að ná honum frá speglinum. Þetta á sko við Frey sem er sjúkur í búninga og ímyndunarleiki, svo hann labbaði mjög ánægður með sig út í bíl og þótti ekki leiðinlegt að honum væri veitt athygli, enda ekki á hverjum degi sem maður mætir ,,Batman bekkins''. Í gær horfðum við á Freyr í leikriti, hann var tröllið undir brúnni í Geitunum þremur, hann stóð sig bara nokkuð vel og var sannfærandi í hlutverkinu, svo það er greinilegt að búningarnir og ímyndunarleikirnir heima hafa sitt að segja ;-) Ásrún virðist hafa sömu gen því í staðinn fyrir að leita að dúkkunni sinni fer hún í búningaskúffuna hans Freys, skellir Spiderman búningnum um hálsinn, grípur stórt vopn og kemur öskrandi fram. Það læra blessuð börnin sem fyrir þeim er haft.
Jæja, nóg um börnin í bili.

Friday, February 17, 2006

R fyrir Rokk, Ról og Rómantík

Þá er komið að síðata liðnum í NÖLDUR. R-ið er ekki laust við smá föstudagsstemningu. Enda rosa fjör framundan. Á morgun er stefnan tekin á afmæli, hún er orðin hvorki meira né minna en 30 ára hún Ágústa, þó ekki líti hún út fyrir að vera deginum eldri en 18 eins og flestir aðrir fæddir á eðalárinu 1976. Það verður því rokk og ról á morgun og hvet ég sem flesta til að rokka og róla um helgina. Það er nauðsynlegt að sleppa af sér beilsinu öður hvoru þó engin sé að segja að beislið þurfi að hverfa og allt að lenda í vitleysu. Rómantíkin tekur svo við á konudaginn. Ég er meira hrifin að hinum íslenska konudegi fremur en Valentínusi. Ég vona því að rómantíkin blómsti í kringum þennan dag og ef ekki þá bara einhverja aðra daga.
Megið þið eiga rokkaða helgi sem lendir mjúklega á rauðum rósum á sunnudaginn.

Thursday, February 16, 2006

U fyrir Undurhljótt

Já, í kringum mig er nú undurhljótt, það er ekki nema hálftími síðan að hér var allt í hershöndum. Nú er logn yfir húsinu, ekki úti. Reynum að finna friðinn og hið unduhljóða í okkur sjálfum. Þögnin segir okkur oft svo margt, sérstaklega þegar við erum búin að vera með útvarpið, sjónvarpið og tölvuna í gangi. Þó í kringum mig sé undurhljótt er líka nóg af dóti og húsverkum sem bíða, en ég er að hugsa um að kúra með teppi í Lazy-boyinum og lesa, kannski ef allt gengur upp dotta ég, þetta hef ég ekki gert allt of lengi.
Ég slekk því á tölvunni eða loka alla vega inn í herbergið og hverf inn í undurhljóða veröld mína.
Megið þið eiga ljúfan og undurhljóðan dag, uss!

Wednesday, February 15, 2006

D fyrir Dugnaðinn

Við erum öll dugmikill, dugleg, ötul, iðjusöm, afkastasöm. Það er púður í okkur, kraftur, orka og töggur. Við getum allt sem dugmikill hugur okkar dreymir um. Látum ekki deigann síga, verum framhleypin í febrúar! Ég hvet alla stólpakvenmenn til að stíga fram og láta til sín taka. Alla afkastamenn hvet ég til dáða!
Við erum dugleg og dámsamleg!
Megið þið ævinlega duga fremur en hitt ;-)

Saturday, February 11, 2006

L fyrir Ljósin

L fyrir Ljósin í lífi okkar hver sem þau eru. Látum ljósin lýsa okkur í skammdeginu. Hugsum vel um ljósin í kringum okkur og ljósin í okkur sjálfum, látum þau ekki slokkna. Ég á mér ótal ljós, fjölskyldan og vinirnir eru ljósin mín. Að sjálfsögðu er svo mitt eina sanna ljós, Jésú. Orðin hans um ljósið eru hreint ótrúlega frábær, þau veita styrk og hugrekki. Jesús sagði: "Ég er ljós heimsins, hver sem trúir á mig mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins"!

Yfir í allt aðra sálma, ég verð að deila með ykkur snilldar draumi sem mig dreymdi á aðfararnótt laugardags. Áhrif skopmyndanna úr Jótlandspóstinum hafa greinilega víða áhrif. Ég er stödd í útlöndum, á leið út úr bíl. Það er mikið af fólki í kringum bílinn og það er einhver órói í andlitunum á öllum. Til mín ganga nokkrir mjög reiðir menn, skeggjaðir og dökkir yfirlitum. Þeir hrópa að mér oðrum sem ég skil ekki en ég næ samt að gera mér grein fyrir að þetta eru reiðir múslimar, hvers vegna eru þeir að ráðast á mig hugsa ég. Allt í einu verður mér ljóst að ég held á plastpoka og í plastpokanum er kippa af Carlsberg svo auðvitað telja þeir mig danska. Ég næ þó að stynja upp orðum sem merkilegt nokk þeir skilja og ég segi aftur og aftur: "Jeg er ikke danks, jeg er ikke dansk!" Þrátt fyrir að ég beri fyrir mig dönskunni trúa þeir mér og til að leggja áherslu á orð mín mölva ég bjórkippuna, við það kætist maðurinn mjög og saman rekum við upp stríðsöskur og stöppum af öllu afli á kippunni, um allt eru glerbrot og ég horfi á Carlsberginn renna um götuna. Alveg tær snilld þessi draumur, hefði átt að selja Spaugstofunni einkaréttinn. Hvað skyldi draumurinn þó merkja? Gunnur, það væri helst að þú gætir túlkað hann, lentuð þið nokkuð í þessu í höfuðborg skopmyndanna? Jæja, ég ætla að henda mér í bólið, kannski verður framhald á draumnum, vonandi fæ þá frekar að klára kippuna án nokkurra vandræða.

Friday, February 10, 2006

Ö fyrir Öflin

Ö fyrir öflin sem búa innra með okkur, virkjum þau. Þú býrð yfir krafti og hugrekki, ég líka. Nú er kýla áfram óskir og drauma af öllu AFLI. Hver manneskja er aflmikil, það þarf bara að finna öflin og láta þau njóta sín. Við eigum ekki að óttast kraftinn sem leysist úr læðingi þegar við losum um öflin, finnum þeim réttan farveg og við getum allt. Margir í þjóðfélaginu hafa reynt að minna á mikilvægi þess að virkja manneskjurnar í landinu fremur orkuna í náttúrunni. Ég segi Heyr, heyr, látum þessar raddir ekki hljóðna. Virkjum eigin öfl og þá fyrst getum við breytt heiminum. Eigið öflugan dag!

Thursday, February 09, 2006

N fyrir að Njóta

Ég á oft við þann vanda að stríða að hafa móral yfir hlutunum, sérstaklega þegar prinsippin mín hverfa fyrir lítið. Ég er enn með móral yfir skamminu við bankakonuna og svo leiðist mér að hafa nöldrað yfir því við ykkur krúttin mín. Til að kóróna allt kom í gær fréttabréf frá Kvennkirkjunni og í pistlinum hennar Auðar, sem mér finnst svo gaman að lesa og tek tillit til biður Auður okkur vinsamlegast um að hætta að nöldra, það geri engum gott og ef við endilega þurfum að segja einhverjum eitthvað sem við erum ekki ánægð með þá gerum við það fallega. Til að bæta fyrir nöldrið mitt. Ætla ég næstu daga að gera NÖLDUR að einhverju jákvæði. Hér er fyrsti pistillinn:
N fyrir að NJóTA!
Njótum alls sem lífið býður okkur upp á. Njótum sérstaklega litlu hlutanna. Njótum þess að vakna á morgnana, njótum þess að drekka morgunkaffið eða teið og ákveðum um leið að njóta dagsins fram í fingurgóma. Njótum okkar, við erum æði! Njótum ásta ;-) Njótum lífsins og þá verður svo skemmtilegt að brosa. Njótið dagsins mín kæru!

Tuesday, February 07, 2006

Fór í banka, ekki banka!

Mín bankaviðskipti minna mig orðið á grínþátt úr Gervabælinu. Einhvern tíma á síðasta ári fengum við hjónin hingað ráðgjafa frá KB-banka sem fór yfir öll okkar banka- og tryggingamál og það varð úr að ég gekk til liðs við KB svo við værum í sama liði og fengum kannski einhver góð kjör út á það. Ballið byrjaði í raun strax í viðtalinu því á meðan konan var hjá okkur hringdi einhver frá KB banka og ætlaði að lokka mig í viðskipti, Hreinn með sinn húmor sem í þessu tilviki kom að góðum notum, lét konuna fá símann og hún talaði við manninn, gekk þeirra símtal út á að spyrja hvar í fyrirtækinu þau störfuðu. Stuttu seinna er hringt í mig og ég beðin um staðfestinu á umsókninnni í bankann og þar stuttu síðar átti ég að mæta í útibúið og fá nýtt kort og allt það, fékk meira að segja þetta forláta skóburstasett með, VÁ VÁ! Hélt ég að ég þyrfti því ekki að hafa meiri áhyggjur af bankastússi í bili, því að er ekki mín sterka hlið og reyndar er ég bara afar slök í að fylgjast með svona hlutum og vera inn í því hvað kemur sér best fyrir mig og mína en hvað um það ég hélt að nú væri þetta í nokkuð góðum gír. Jæja, einhvern tíma í nóvemeber fæ ég bréf frá viðbótalífeyrissparnaði KB hvort ég vinni ekki enn hjá sama fyrirtækinu, jú ég vissi sjálf að ég væri enn á launaskrá en fengi engin laun því verkefnið væri ekki í gangi í bili. Ég nennti ekkert að tilkynna þeim það, nei síðan þá hafa þrír mismunandi aðilar frá þessum blessaða banka hringt seint að kvöldi til að spyrja að þessu, hvar ég vinni og hvaðan ég fái tekjur. Ég hef reynt að vera nett kurteis yfir þessu enda reyni ég að æsa mig ekki við fólk sem reynir að vinna sína vinnu. Svo sprakk ég í kvöld, er reyndar enn með móral yfir því. Þá hringir enn ein persónan og hún segist vera með umsókn frá mér fyrir framan sig um að ég vilji komast í Vöxt en þar sem ég uppfylli ekki öll skilyðri spyr hún hvort hún megi bóka símtal til mín frá ráðgjafa. Ég segist þá bara ekkert skilja í þessu lengur, ég vilji bara vera hversdagslegur viðskiptavinu KB banka, já þá uppfylli ég öll þau skiliyrði en ekki hjá VíS, halló, við ætluðum ekkert að skipta um tryggingar var skýrt tekið fram við einhvern af litlu grænum ráðgjöfunum. Aumingja konan baðst afsökunar og ætlaði að afskrá þessa umsókn um Vöxt. Er ekki allt í lagi með þetta lið, jæja, þetta heldur þó niðri tölum um atvinnuleysi. Það er greinilega nóg að gera og miðað við þetta greinilega allar línur glóandi hjá KB út af hinu og þessu. Fyrr má nú vera. kannski væri bara best að fá útborgað í seðlum og eiga innlegg í búðunum, fá smjör í skiptum fyrir lopavettlinga og leyfa ráðgjöfunum hringja frekar á Rás 2 og fá óskalag.
Jæja, ég varð bara að fá að röfla. Ég er samt með sjúklegan móral að hafa misst mig við aumingja stúlkuna sem ætlaði að vera ógurlega kurteis við mig, ég hefði átt að telja upp á 10 og segjast svo ekki hafa tíma fyrr með vorinu og þá væri ég kannski komin í gott skap.
Heheheheheeh! En svo ég hætti þessu röfli og segi einn aulabrandara í lokin svo allir komist í gott skap.
Tvær appelsínur voru á gangi úti við sjóinn þegar önnur datt út í, þá sagði hin: ,,Fljót! Skerðu þig í báta''!
Upp með góða skapið ;-)

Sunday, February 05, 2006

Dagskrá síðustu daga

Það hefur verið nóg að gera í vikunni. Ekkert nema gott um það að segja.
Eftir æskulýðsfund á fimmtudagskvöld brunaði mín í höfuðborgina á ekki ómerkari stað en Gauk á Stöng. Þar var hin merka hljómsveit Slow Train, Bob Dylan Tirbute Band að spila og spilar eiginmaðurinn á gítar í hljómsveitinni. Mín var því "grúppí". Þeir voru bara nokkuð góðir og var gaman að kíkja á þá, dró einmitt Elfu syss með og var hún bara líka sátt, sagði það alla vega við mig heheheh ;-)
Á föstudeginum stimplaði ég mig út af heimilinu um hádegi og fór með eitt rútu til Reykjavíkur, alltaf notalegt að taka rútuna. Á leiðinni las ég bók sem ég fékk í jólagjöf en það er bókin: "Draumaveröld kaupalkans", það er svolítið kaldhæðnislegt að bókin hafði þau áhrif á mig að það var eiginlega brunalykt af mér þegar ég fór út úr Kringlunni svo mikið var straujað. Ég ætla bara ekki að lesa meira í bókinni fyrr en töluvert síðar. En allt voru þetta bráðnauðsynlegir hlutir eða réttara sagt flíkur og fylgihlutir, híhíhí. Ég fór líka í Kirkjuhúsið og keypti mér smá guðfærði til að vega upp á móti hinum veraldlegu eyðslu. Loks arkaði ég í Neskirkju og kíkti á stofnfund æskulýðsfélags Þjóðkirkjunnar, þar hitti ég óvænt Sollu vinkonu mína að norðan, það var hápunktur fundarins. Þetta var svo það eina kristilega sem fram fór þetta kvöld restin var bara niður á við eða kannski bara upp. Ég þakka Sif og Karenu hrikalega vel fyrir síðast, þetta var æði, allt kvöldið ;-) Lifi á þessu lengi. Laugardagurinn var í leti og var það vel. Freyr varð eftir í Reykjavík hjá frænku sinni og átti með henni mikið skemmtilega menningardaga í höfuðborginni. Á sunnudag lá leiðin enn og aftur til höfuðborgarinnar og nú í 3 ára afmæli til Patreks Thors, voða stuð og var erfitt að ná Frey heim, sem virtist ekki vitund sakna þess að vera ekki búin að vera heima hjá sér síðan á laugardagsmorgun. Á sunnudagskvöld var óvænt matarboð hjá Gauja og Birnu, ekta gamaldags kótilettur og ís og ávextir í eftirmat, við slefuðum öll yfir kræsingunum og hrópuðum húrra fyrir því gamla góða sem stundum gleymist fyrir glamúr uppskriftum í glanstímaritum.
Þannig leið helgin og þannig var það, nú er að enn á ný mánudagur og ekki laust við smá bömmer eftir þessa þéttu dagskrá en hið bjarta ljós mánudagsins rennur upp með hverri klukkustund sem líður af deginum og fyrr en varir verð ég komin í joggingin og LOST byrjað ;-)