Þreytt húsmóðir
Helgin er liðin og við komust til Reykjavíkur. Þetta var hið fínasta matarboð og mjög gaman að hittast, borða og spjalla. Sum sé kærkomið ,,night out". Annars hefur verið einhver mánudagur í mér alla dagana eftir. Ég gersamlega nenni ekki að vera húsmóðir. Geri hin nauðsynlegustu verk með hangandi hendi. Held svei mér þá að nágranarnir taki þátt í því að lauma hingað ryki og drasli svo ég hafi ekkert annað að gera en þrífa og taka til. Mig grunar líka að ég sé að þvo fyrir hálft þorpið, það bætist og bætist í óhreinatauið og samt er ég alltað að setja í vél, hengja upp, brjóta saman o.s.frv. Ég er bara ekki í nokkru stuði fyrir þetta þessa dagana en einhver verður að sinna þessu, ég er heima svo ..... Mig langar reyndar bara að vera föndra jólakort, ég er eiginlega smá sjúk. Það er eitthvað svo notalegt að sitja bara og dúllast, detta inn í annan heim og sjá ekkert með jólafrið og fögnuð, samt er bara nóv ný byrjaður. En jæja hvað um það, það þýðir ekki að lifa bara í draumheimi, ekki er hægt að bjóða upp á jólkort í kvöldmat, hehehe! Hvað skyldi annars meðal jólkort innihalda margar hitaeiningar?
Jæja, nóg af kvarti og kveini í bili, þetta gengur allt yfir það er pottþétt. Áfram ég, fæ á eftir sendingu af ryksugupokum og þá duga engar afskanir lengur!
Jæja, nóg af kvarti og kveini í bili, þetta gengur allt yfir það er pottþétt. Áfram ég, fæ á eftir sendingu af ryksugupokum og þá duga engar afskanir lengur!


1 Comments:
At 11:24 AM,
Gunnur said…
hahahahahaha gvuð hvað ég skil þig vel. Var einmitt farin að gruna færeyingana í næsta húsi, held að þvottavélin þeirra sé biluð.....
Knús frá gunnsu gúmmíhanska
Post a Comment
<< Home