Jólakortin búin
Jæja, haldiði að mín hafi ekki bara klárað að föndra jólakortin áðan. Jibbí, þetta var helst til of mikil dúllí dúll. Ég var að hugsa um það á mánudaginn, þá var ég að klippa og klippa frá mér allt vit, þannig að vinnan við kannski eitt kort fór stundum upp í klukkutíma. Svo tekur fólk kortið úr umslaginu, slær sér á lær og segir: "Sei, sei, sú er myndarleg að nenna að föndra, þetta geta þær þessar heimavinnandi húsmæður", svo skellir það kortinu aftur í umslagið og það sést ekki meir og ég var f... klukkutíma að búa til kortið. En hvað um það ekki eru öll kortin svona vönduð, þið verðið svo að vega það og meta þegar þið opnið umslagið hvort þið séuð mér þess virði að fá "klukkutímakort" eða bara "fimmmínútnakort". Annars var ég að koma úr söngtímanum mínum frá kraftaverkamanninum Stefáni. Honum hefur tekist að fá mig til að halda nokkurn vegin lagi og mín er bara farin að hafa gaman af því að syngja. Þannig að ég segi við ykkur þarna úti: "Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi"! Fyrst jólakortin eru búin er ég eins og hálf vængbrotin, hvað á ég nú að gera? Kannski eiginmaðurinn komist að í staðinn hehehehe! Svo eru það smákökurnar í næstu viku og ekkert múður, ég ætla bara víst að gera nokkrar sortir því svo nenni ég ekki að baka í desember, ég ætla þá að vera í heimsóknum og notalegheitum, kíkja á Skagann og svona eitthvað skemmtilegt ;-)
En best ég fari bara í háttinn á skikkanlegum tíma, það er um að gera að sofa vel fyrir föstudaginn svo ég sofni ekki fyrir miðnætti. Góða nótt öll þarna úti og Guð geymi ykkur!
En best ég fari bara í háttinn á skikkanlegum tíma, það er um að gera að sofa vel fyrir föstudaginn svo ég sofni ekki fyrir miðnætti. Góða nótt öll þarna úti og Guð geymi ykkur!


0 Comments:
Post a Comment
<< Home