Guðbjörg Arnardóttir

Friday, November 04, 2005

Húsmóðirin rís af svefni

Jæja, þetta gekk yfir og heldur betur. Kannski er ég smá manísk, annaðhvort í ökkla eða eyra hjá mér. Ég fór í sundleikfimina mína í gærmorgun og ákvað að reyna að kýla allt burt sem kallaðist slen. Viti menn það virkaði. Þetta fór hægt af stað og ég byrjaði að endurraða í eldhússkápunum. Ásrún vissi orðið alveg hvar kexið var geymt og var farin að hanga linnulaust yfir þeirri skúffu svo kexið er komið í felur og plastdollur í staðin. Fyrst ég var komin í stuðið var eins gott að halda áfram svo ég fór að endurraða kommóðum í húsinu. Ein eldgömul og að hruni komin fékk að fjúka úr húsi og fer á haugana um helgina. Önnur hirsla ögn skárri en þó ekki fékk að fara í sólhúsið og fær að skemmast þar þegar tekur að rigna og húsið að leka. Skiptiborðið er ekki lengur skiptiborð og er komið inn í stofu. Skotist var í Europris og bætt við döllum undir dót sem þvælist annars hingað og þangað. Svo mín var í stuði, auðvitað var svo lokhnykkurinn að ryksuga með nýju ryksugupokunum. Hver segir svo að líf hinnar þreyttu húsmóður geti ekki tekið á sig óteljandi og spennandi myndir. Á eftir er ég að hugsa um að skjótast með börnin í IKEA og kaupa ný náttborð, sem hægt er að loka og fela allt draslið og rykið sem safnast fyrir. Það er pottþétt að ég ætla líka að skoða jólaskrautið.
Eiginmaðurinn er í kvöld að spila með sinni einstöku hljómsveit Slow Train, þeir verða á Útlaganum á Flúðum. Endilega kíkið á málið sem eru í gírnum. Ég er ekki svo sjúk í djammið svo ég ætla að vera heima og sinna börnunum, hangi ekki við slefandi við sviðið í þetta skipti, kannski næst ;-) Þegar börnin eru sofnuð verður tekið til við föndrið og fyrst karlinn er ekki heima er aldrei að vita nema ég laumist til að hlusta á eins og eitt til tvö jólalög eða jafnvel Bolton ef þannig stendur á hehheh. En þið lofið að segja ekki neinum, usssss!
Góða helgi!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home