Guðbjörg Arnardóttir

Saturday, November 19, 2005

Gömul kynni gleymast ei

Fernt er til gott í heimi hér:
gamall viður í arineld,
gamalt vín til að dreypa á,
gamlar bækur að glugga í
og gamlir vinir sem treysta má.
Alfons af Kastlíu

Já, þetta eru orð að sönnu. Mikið rosalega var gaman í gær að hitta alla gömlu félagana og nýju meðlimina. Þetta var frábært kvöld og þið sem þar voruð, takk fyrir síðast. Þetta er algerlega nauðsynlegt að gefa sér tíma til að hitta vini sína og hafa gaman, hlæja mikið og grínast af gömlum sögum og nýjum. Nú er bara að fara að láta sig til hlakka til LUX 2007, Kolla hefur boðið í partý. Byrja að safna og fara í rólegheitum að pakka niður.
Annars er heilsan bara súper, þegar er gaman þá er það líka áfram daginn eftir. Allt orðið fínt á heimilinu, skúringum lokið og allt í góðum gír.
Nú höfum við það fjölskyldan bara notalegt inni í rigningunni, óska ykkur þess sama, góðar stundir.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home