Allt við það sama
Hér er allt við það saman og eins og máltakið segir eru engar fréttir víst góðar fréttir. Helgin síðasta var mjög fín. Woyzek var stórkostelgur. Öðruvísi leikrit en allt annað og mjög gaman að því. Hins vegar þurfti innihald verksins á einhvern hátt að líða fyrir það því ekkert snerti allt dramað við mér. Ég á það til að gráta í leikhúsi ef stykkið nær til mín en þrátt fyrir öll ósköpin á sviðinu snerti ekkert af því mig. En allar hgumyndir og útfærslur voru frábærar að ég tali nú ekki um tónlistina svo þetta var allt þess virði. Kvöldið með stelpunum þegar heim var komið var líka frábært og eins og best verður á kosið. Kíktum í Pakkarann og allt hvað eina. Það var bara merkielgt nokk mjög gaman. Við þurftum að prófa hin ýmsu skot sem maður hefur alveg misst af að væru til síðan maður datt út úr hinu reglulega gjálífi :-) Skál fyrir nýjungunum.
Annars styttist í föstudaginn og geimið þá, það verður stuð.
Hef annars ekkert markvert meira að röfla um en það kemur betri tíð með innblásnari færslum.
Annars styttist í föstudaginn og geimið þá, það verður stuð.
Hef annars ekkert markvert meira að röfla um en það kemur betri tíð með innblásnari færslum.


1 Comments:
At 10:10 AM,
Gudbjorg said…
Heeee !!!!!
Sammála
Post a Comment
<< Home