Guðbjörg Arnardóttir

Monday, October 24, 2005

Til hamingju með daginn stelpur!

Kvennafrídagurinn runninn upp og eftir vangaveltur á ýmsa lund gat ég ekki annað en verið trú minni innri konu. Ég skutlast því til Reykjavíkur á eftir og ætla að ganga með systir minni. Það er margt sem dregur mig af stað og vona ég að þessi dagur skili miklu fyrir kvennabaráttuna. Sumir segja að þetta sé nú meira bullið, það ríki fullkomið jafnrétti alls staðar í þjóðfélaginu. Já, einmitt! Þá þarf ég ekki annað en skoða landshlutablaðið Gluggann frá því síðastliðin fimmtudag. Í Glugganum er mynd af góðum skólabróðir mínum, sem verið var að vígja til prests í Skálholti. Ég óska honum að sjálfsögði innilega til hamingju og óska honum alls hins besta í starfi. Hins voru með honum á myndinni vígsluvottar og var þetta hinn myndalegasti hópur nema hvað þetta voru allt stórir og stæðilegir karlmenn, já það má með sanni segja að miklu hafi verið áorkað síðustu 30 árin eða hvað? Ég fer því eldheit til höfuðborgarinnar og segi ekkert nema áfram við stelpur!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home