Guðbjörg Arnardóttir

Monday, October 24, 2005

Liðin vika

Þá er komin föstudagur enn eina ferðina, tíminn flýgur. Vikan hefur verið hlaðin verkefnum. Við höfum verið með aukabarn, hann Jóhann Fannar í pössun eftir hádegi. Þau hafa nú ekki mikil samskipti frændsystkin þrátt fyrir að vera fædd með eins dags millibili og legið saman á sjukrahúisinu. Það kemur þó með aldrinum er ég viss um. Ég var með mjög ungan mann í vinnu hjá mér í morgun. Freyr Hreinsson tók til í herberginu sínu. Honum var mútað eða öllu heldur boðin laun gæti hann tekið til. Hann lokaði að sér og gerði það mjög samviskusamlega og var þetta mjög vel gert hjá honum. Peningana ákvað hann að nota til að leigja spólu og eftir leikskóla fórum við og tókum Bionicle 3, þannig að laununum var strax eytt. Eiginmaðurinn fór í morgun í Ljóta poll að reyna að landa nokkrum fiskum. Auðvitað vona ég hans vegna að hann hafi veitt en hvað mig snertir er nóg til að silungi í frystinum og ég hef eiginlega fengið nóg af silungi í bili. Langar núna bara í þorsk og soðna ýsu. En það verður að nýta það sem til er. Við erum sum sé hress hér í Stekkholtinu og komum vel undan vinnuvikunni. Framundan eru veisluhöl um helgina, afmæli á morgun og skírn á sunnudaginn, alltaf nóg af mannamótum í kringum okkur. Nú hef ég lokið máli og hef hugsað mér að skjóta á mig einum bjór svona af því að það er flöskudagur en þó ekki meira en einum til tveimur. Góða helgi!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home