Guðbjörg Arnardóttir

Tuesday, October 18, 2005

Gjugg í borg

Það byrjar ekki frumlega bloggið. Elfa syss klukkaði börnin mín en þar sem það yrði bara væmið að fara að skrifa um þau þá ákvað ég að slá til og gera míns eigins síðu og sjá hvað ég nenni. Byrja alla vega á þessu klukki og sjá svo hvað gerist. Ég hef voða gaman að því að fylgjast með mínum félögum og kannski bara eru einhverjir þarna úti sem ekki nenni að hringja í mig og vilja frekar lesa um mig á tölvuskjánum.
Klukkið:
Ég er skipulags og reglu sjúk. Það kemur fram í mörgu. Ætla ég því að telja upp fim atriði sem styðja þá staðreynd.
1. Í gær vorum við hjónin að setja kjöt í frystinn í miklu magni og það pirraði mig smá stund að ég var ekki með nógu flotta límmiða til að setja á plastpokana, bara með hálf klippta og mér fannst það hálf ,,sjabbí'', ég veit þetta er sjúkt.
2. Þegar ég er í miklu svingi þá raða ég í uppþvottavélina með þvi að hafa allar skeiðar sér, alla gaffla sér o.s.frv. Já, ég veit ég er líklega orðin of ... í húðsmóðurhlutverkinu.
3. Þetta er líklega einmitt ástæðan fyrir því að ég fann mig mun betur í Þýskalandi en í Danmörku. Lét ligegladheit Danana pirra mig. Eitt námskeiðið sem ég sótti Nord-plus veturinn minn í Köben voru fámennir tímar þar sem við sátum við borð og spjölluðum. Ekki þótti annað en sjálfsagt þó reykt væri inni í stofunni og dró kennarinn óspart fram öskubakkann til að minna liðið endilega á að fá sér réttu. Í öðrum tíma þessa námskeiðis þá var tímanum breytt, honum var seinkað því kennarinn og einn annar nenntu ekki að vakna svona snemma til að ná lestinni, með seinkuninni gátu þau náð lestinni svolítð seinna og seinkað vekjaraklukkunni. Þetta er ekki minn háttur.
4. Ég er sjúk í kassa og skipulagshillur. Mér finnst dásemd að fletta í gegnum síðurnar í IKEA bæklingnum sem sýna ótal útfærlsur á skipulagi. Ég get skoðað þessar síður aftur og aftur og látið mig dreyma um fullkomið skipulag í húshaldinu. En líklega er best fyrir alla aðila heimilisins að þetta verði ekki að veruleika.
5. Ég á það til að skipuleggja í huganum atburði dagsins í smáatriðum, einkum í hvaða röð ég eigi að gera hlutina. Þetta getur valdið erfiðleikum sérstaklega þegar ég gleymi að upplýsa saklausan eiginmann minn um skipulagið. Svo þegar hann gerir hlutina í annarri röð en ég ætaði þá getur mín orðið soldið pirruð. Reynar sjá börnin nokkuð reglulega um að skipulagið gangi ekki upp svo ég er í æfingu við að taka því sem að höndum ber.

Þannig var það og nú er skipulagið þannig að ég ætla að kíkja á útkomuna, senda systir minni skilaboð um að ég hafi staðið mína pligt, slökkva á tövlunni og koma mér í ból.
Já, ég klukka Lindu Björk færnku mína, hún var áðan í heimsókn og ég er viss um að hún er í stuði fyrir þetta.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home