Guðbjörg Arnardóttir

Tuesday, October 25, 2005

Gangan góða

Við systurnar skelltum okkur í gönguna góðu í gær. HÚRRA! Það var rosa gaman, ég hefði ekki viljað missa af þessu, þó við höfum ekki séð nema örsmátt brot af atriðunum þá breytir það ekki öllu. Við byrjuðum við Hallgrímskirkju, komust á Ingólfstorg og svo lölluðum við okkur heim aftur með viðkomu á orkustöð. Þetta var flott. Það var líka bara rosa gaman að vera með systu litlu, ekki oft sem við erum bara tvær og getum spjallað um allt. Oftast erum við umrkringdar ættingjum og vinum sem tala meira en við heheheh eða gargandi börnunum mínum. Flottur dagur með flottum konum. Svo er bara vonandi að fullt jafnrétti náist hið fyrsta.
Þessi dagur var hins vegar venjulegur, hversdagurinn uppmálaður. Fór og reyndi að kenna krökkum um Guð og lífið í Kirkjuskólanum en þess á milli reyndi ég að ala upp börnin mín og eitt til ;-) Kíktum svo á einn þriggja vikna gutta áðan, voða fínn.
Nú hef ég hins vegar komið síðunni svolítið í gang eftir stutta kennslustund í bloggi hjá kennslukonunni hennir systur minni, takk Elfa ! Nú ætla ég í smá dadaradadamm ...... haldið ykkur ! Jólaföndur. Já ég fór í PS í morgun og keypti efni í jólakort og ætla að hafa gaman af þessu meðan tími er til, það verður pottþétt ekki í desember. Svo þið öll sem fáið frá mér jólakort megið búast við heimagerðu frá hinni myndarlegu húsmóður, hehehheh!!
Upp með skærin og ble í bili

0 Comments:

Post a Comment

<< Home